Hvað gildir inneignin mín lengi í Frelsi?

Í Frelsi er boðið upp á tvo reikninga sem geyma inneign þína og hafa gildistíma:

  • Aðalreikningur: Gildir fyrir alla almenna notkun og allar áfyllingar sem þú gerir fara þar inn.
  • SMS-aukareikningur: Tilboð og gjafaáfyllingar geta farið inn á SMS-aukareikning en þú getur ekki keypt inneign sérstaklega á þennan reikning.

Inneign á aðalreikningi

Virk
Í 6 mánuði eftir að síðast var bætt við inneignina.
Þú getur hringt fyrir verðmæti inneignar þinnar í 6 mánuði að meðtöldum kaupdegi. Þú getur móttekið símtöl út þetta tímabil þótt engin inneign sé eftir. Ef þú kaupir aðra inneign og fyllir á innan þessara 6 mánaða er þeirri upphæð bætt ofan á eftirstöðvar af fyrri inneign, ef einhverjar eru, og nýtt 6 mánaða tímabil hefst.

Óvirk
Ef 6 mánuðir hafa liðið frá síðustu áfyllingu verður inneignin óvirk og þú getur hvorki hringt né móttekið símtöl. Þú getur þó hringt í Málsvarann 1441, þjónustunúmer Frelsis 800 7000 og 112.
Þú getur fyllt á Frelsi hvenær sem er á þessu 6 mánaða tímabili. Þá bætist sú upphæð við eftirstöðvarnar af fyrri inneign, ef einhverjar eru, og nýtt 6 mánaða tímabil hefst.

Útrunnin
Eftir að óvirka tímabilinu lýkur, ári eftir síðustu áfyllingu. Þá fyrnist inneignin, ef einhver er, og einnig áskiljum við okkur rétt til að aftengja þjónustuna.

Inneign á SMS-aukareikningi

Virk
Í 4 vikur eftir síðustu áfyllingu.

Óvirk
Eftir að virka tímabilinu lýkur og þá fyrnist inneignin, ef einhver er.


« Til baka

Síðu aðgerð




Vefhlutar

Aðrir vefir