Ertu alveg viss um að þú sért að senda SMS „klink“ í 1441? Allt í lagi, þá skaltu lesa skilaboðin sem þú færð til baka frá Klink-þjónustunni.
Ef allt er í steik þá hringirðu auðvitað í þjónustuver Símans 800 7000 og við gerum okkar besta til að redda málunum.
Klink- þjónustan virkar þannig að ef þú sendir röng skilaboð, t.d. „klonk“ í 1441 þá færðu til baka boð um að þú hafir sent texta sem passar ekki við þjónustuna. Ef þú færð ekki SMS athugaðu þá vel hvort þú hafir sent SMS í síma 1441. Ef þú hefur gert allt rétt hafðu þá samband við þjónustuver Símans 8007000.