Ef þú leggur ekki inn á kortið þitt í 1 ár finnst okkur alveg spurning að vera að halda því lengur opnu svo við aftengjum það. Við gefum þér samt séns því þú ert rétthafi kortsins í 6 mánuði í viðbót og getur þá að sjálfsögðu látið tengja það aftur.
Þegar þú leggur inn á Frelsið þitt er sú inneign virk í 6 mánuði. Eftir það er ekki hægt að hringja í númerið þitt en inneignin er kyrr á sínum stað. Í 6 mánuði eftir það er kortið enn tengt og eina sem þú þarft að gera til að virkja það aftur í 6 mánuði er að leggja inn á Frelsisnúmerið.