Hvernig fylli ég á Frelsi?

Þægilegasta leiðin til að fylla á inneignina er á Mínum Frelsis vefnum, en þar geturðu skráð debet- eða kreditkortið þitt og þannig tengt það við farsímanúmerið. Eftir það getur þú fyllt á farsímann þinn hvar og hvenær sem er með því að hringja í 1441 og upphæðin skuldfærist af debet eða kreditkortinu þínu.

Mitt  Frelsis vefurinn býður einnig upp á möguleika eins og velja reglulegar áfyllingar fyrir inneignina og sömuleiðis að kaupa stakar.

Hringt í 1441

Þú hringir í 1441, velur 2 til að fylla á, því næst upphæðina og staðfestir með lykilnúmerinu sem þú valdir þér við skráningu. Áfyllingin kemur svo inn samstundis.

Áfylling í GSM síma

Aðrar áfyllingarleiðir

  • Skafkort: Fást í fjölmörgum verslunum, pósthúsum, bensínstöðvum, söluturnum og myndbandaleigum um land allt.
  • Heimabankar: Þú getur fyllt á Frelsi í öllum íslenskum heimabönkum 
  • Hraðbankar: Þú getur fyllt á Frelsi í hraðbönkum Glitnis, KB Banka og Sparisjóðsins. 
  • Mitt Frelsi valmynd í GSM símanum: Þú getur keypt inneign, bæði á þitt eigið númer og öll önnur GSM-númer hjá Frelsi Símans. Sæktu Mitt Frelsi - VIT valmyndina með því að senda SMS textann 'frelsi' í 1441 eða fá þér nýtt símkort í næstu verslun Símans.


« Til baka

Síðu aðgerð




Vefhlutar

Aðrir vefir