Kollekt, Klink og Hringdu!

Hringdu!

Þú þarft engar áhyggjur að hafa þótt inneignin sé búin og þú þurfir nauðsynlega að ná í einhvern. Notfærðu þér þjónustuna Hringdu! og viðkomandi hringir í þig tilbaka.

Það eina sem þú þarft að gera er að senda skilaboðin: Hringdu *símanúmer þess sem á að hringja* (t.d. Hringdu 8009999) í númerið 1441. Hann eða hún fær þá SMS skilaboð um að þú óskir eftir símtali. Þessi þjónusta er ætluð öllum þeim sem eru í Frelsi hjá Símanum.


Kollekt *888*

Það er sama hver staðan er, þú getur alltaf hringt Kollekt. Þjónusta þessi gerir öllum þeim sem eru með GSM hjá Símanum kleift að bjóða öðrum aðila sem er líka með GSM hjá Símanum að greiða fyrir símtal þeirra á milli.

Til að hringja Kollekt velurðu *888* á undan númerinu sem þú vilt hringja í og færð þá að vita hvort sá aðili sem þú hringdir í, samþykkir að greiða fyrir símtalið eða ekki. Móttakandi símtals er aldrei gjaldfærður nema hann hafi samþykkt símtalið.


Klink

Ef inneignin er 50 krónur eða lægri, getur þú fengið 150 krónur lagðar inn á númerið þitt með því að senda SMS textann KLINK á símanúmerið 1441. Upphæðin er síðan dregin af númerinu þínu næst þegar þú fyllir á Frelsið.

Athugaðu að einungis er hægt að fá eitt KLINK-lán á milli áfyllinga.



Síðu aðgerð




Vefhlutar

Aðrir vefir